Bónstöðin er opin milli 9:00 - 17:30 virka daga
|
Bónstöð Jobba
Jósef Kristjánsson hóf störf hjá Sveini Egilssyni hf í Skeifunni 17 árið 1982. Þeir höfðu þá verið að leita að manni sem gæti séð um þá deild í fyrirtækinu sem sá um þrif og standsetningu nýrra bifreiða. Þar vann hann og öðlaðist þekkingu á bílavörum og lakktegundum.
Þegar Sveinn Egilsson hf hætti starfssemi, flutti Jobbi aftur í Skeifuna 17 og hefur verið þar síðan. Hann flutti nokkuð fram og til baka innan hússins m.a. í kjallarann þar sem hægt var að koma fyrir yfir 15-20 bílum í þrif. Nú er fyrirtækið sunnanmegin í húsinu (vísar að Miklubraut) og er þar enn. Þar er hægt að koma fyrir 6 bílum í þrif og telst það nokkuð gott. Jobbi þrífur nýja og notaða bíla fyrir Suzuki Bíla ehf og fleiri þekkt fyrirtæki. Þú ert hér með boðinn velkomin(n) að slást í hóp ört vaxandi ánægðra viðskiptavina. Við gerum gott betra. |